Leita í fréttum mbl.is

Hið opinbera kerfi gerir ekki vel gagnvart þessum börnum

En það hefur skilið þau í sundur systkinin og fær elsti bróðirinn ekki að sjá yngri systkini sín nema 14 hvern dag og þá vaktaður.  Hann fékk sér bílpróf fyrir stuttu til að geta eftir vinnu keyrt til sinna sjö yngri systkina og heimsótt þau

Finnst honum erfiðast að kveðja yngsta systkini sitt þar sem honum var komið á barnaheimilisstofnun og skilur ekki hví stóri bróðir fer. 

Hann sá elsti átti nítján ára afmæli í gær og byr nú til leigu hja fósturforeldrum þeim þar sem systkinin voru öll fyrstu 2 mánuðina saman eftir að þau voru tekin frá foreldrum sínum.  Sótti hann í tilefni afmælisins um að fá að safna systkinum sínum saman og halda upp á daginn en sveitarfélagið svaraði þeirri ósk ekki.  Hans heitasta ósk er að þau fái að búa saman fljótlega öll átta en sú elsta þroskahefta systirin í flokknum níu býr hjá móður sinni

Því má segja að hið opinbera keppist um að refsa þeim seku en gerir ekki inn á að laga tilfinningar þeirra misþyrmdu  börnum í þessu máli  


mbl.is Dönsk hjón misþyrmdu 9 börnum sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Bara eitt ógeðslegt mál þar sem lítið sem ekkert er gert fyrir fórnarlömbin... :(

Svo miðað við sögubækur og gögn um hvernig danaveldi hefur komið fram gagnvart þegnum sínum gegnum tíðina fá stjórnvöld ekki háa einkun.

Kveðja

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 19.2.2011 kl. 15:37

2 identicon

Það sem ég þekki af Danska kerfinu er ekkert nema gott .. Krakkarnir frá mikinn stuðning sem fylgir þeim lengi. Þetta mál er ömurlegt í alla staði en eins og ég segi þá hef ég ekkert nema gott heyrt frá þeim sem ég þekki og hafa búið inni á heimilum hjá fólki og á svo kölluðum unglingaheimilum eftir það. Kærastinn minn er 22ja ára og hefur ennþá aðgang að sálfræðingum og stuðningsfulltrúum, og það gera "systkini" hans líka og til samanburðar þá fékk vinkona mín á Íslandi sem var tekin frá foreldrum sínum ALDREI neinn utanaðkomandi stuðning.

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 19.2.2011 kl. 17:22

3 Smámynd: Jón Arnar

Ekkert að kritisera annars okkar góða kerfi hér í DK Hrafnhildur síður en svo.

En aðalforgangur í þessu tilfelli er að börnin ÞURFA að fá að umgangast hvert annað á venjulegasta mögulegan hátt og þá ekki undir eftirliti 24/7 og eins er erfitt fyrir þau að heimsækja hvort annað er þeim er dreift útum allt.  

Í stað þess að reyna að leyfa þeim að sjálfhjálpa sér í því sem hægt er að treysta börnum til þarf allt að sækja um með fyrirvara til kerfisins líkt og afmælisboðið sem hann ju óskaði sá er ég vitna í að bjóða litlu systkinum sinum í svo þau fengju i hið minnsta þá daga saman þá gekk það einfaldega ekki upp sökum kerfistregðu.

Jón Arnar, 19.2.2011 kl. 17:50

4 identicon

Enda var þetta kannski frekar til Kalda .. og ég er alveg sammála þér með að þau eiga að fá að vera saman

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 19.2.2011 kl. 18:44

5 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Það getur vel verið að ég hafi rangt fyrir mér um ýmis mál en sagan segir mér að svona sé farið með þegna danaveldis eins og ég orðaði það í fyrra áliti.

það að fólk fái aðgang hvert að öðru er ekki sjálfgefið hjá dananum, en það er ekkert kerfi svo gott að ekki sé hægt að bæta það.

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 19.2.2011 kl. 22:28

6 Smámynd: Jón Arnar

Eg er hræddur um að þu hafir ekki mikla gloru um hvernig við höfum það her i DK á 21 öldinni  "Kaldi" 

En þú sýnist mér ert fastur einhverjum öldum fortiðar og telur að hun se slik nu - þa voru nylendu eignarriki flest þannig þvi miður gert til að fa betri lifskjör fyrir sina aðalstett þannig var stillinn hja þeim þá en ekki nú. 

Komdu þér í nútiðina er ráð mitt

En eins og þú segir sjálfur: "það er ekkert kerfi svo gott að ekki sé hægt að bæta það." þar getum við verið sammála að sé aðalmergurinn í þessu bloggi og frétt frá Jótlandi

Jón Arnar, 19.2.2011 kl. 22:44

7 identicon

Kaldi, ég bjó í danmörku í 4 ár. Danir hafa lært betur af sögunni en við þegar kemur að velferðamálum.

Ég veit ekki hvaða part af sögunni þú ert að benda á, það er rétt að Danir fóru út í tilraunastarfsemi með að færa grænlensk börn frá fjölskyldum sínum í einhverju velferðar-tilraun á 60 áratuginum.

En á sama tíma færðum við börn frá foreldrum sínum á vinnuheimili með hræðilegum afleiðingum og við bættum aldrei fyrir það. Grænlensku börnin fengu bætur og stuðning frá danskra ríkinu eftir að tilraunin hafði verið hrakin upp á yfirborðið og fordæmd.

Við eigum mun minna samfélag og ættum að geta verið með allra besta velferðakerfi norðurlandana, en samt erum við ekki með tærnar þar sem danir og normenn hafa hælana.

Einar (IP-tala skráð) 20.2.2011 kl. 16:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 1042

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband