Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2009

Afhverju í ósköpunum eru þessar göngur alltaf rangnefndar?

Og alltaf kallaðar mótmælagöngur í stað kröfugangna sem þær jú eru. 

Allir heimsbúar eru jú sammála, stjórnmálamenn sem og fólkið á götunni að við þurfum að gera eitthvað, en fólk leggur mismunandi áherslu á sínar skoðanire og því er hér gengið í KRÖFUGÖNGUM af ýmsu tagi.

 

demo13-12 

 

 

 

 

 

Foto: Anders Debel Hansen © scanpix

að ofan mynd frá dagsins demo


mbl.is Enn er mótmælt í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og allir í himnagóðu skapi yfir hve vel tókst til í dag!

COP15

Foto: PETER HOVE OLESEN

og bara tæpt 1% af þáttakendunum hagaði sér ekkert of vel og var tekið frá í kælingu úti í "valbyanamo" og þótti ekki mikil afföll þar.

Stór Kissing yfir góðum degi!


mbl.is Friðsamlegar mótmælaaðgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hér er bein útsending

Extrablaðsins af þessum 200-300 af 100.000 sem er búið að taka úr umferð og sitja með hendur reimaðar fyrir aftan bak niðrá ChristmasMøllerPlads

EB


mbl.is Tugir þúsunda mótmæla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Voru komnir ca 100.000 þáttakendur í "Klimastuðningarfundi" við Kristjánsborgarhöll

klukkan 12 og fer fjölgandi er nú er gengið áleiðis til BellaCenter eru komnir á móts við mitt hreiður nú svo mar slæst því í hópinn - meira seinna í dag og kanski smá mobilmyndir
mbl.is Mótmælendur á mengandi rútu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott að fá þau svona í einni lest "skrigdyren" frá UK-F-B

Þá gætu sumir fengið píningarhvöt sína uppfyllta og bara skellt henni í lás er á áfangastað væri komið og fílað sig sem hetjur af þeim ógerning.  Hér í hreinustu höfuðborg Evrópu voru blábílaðir út um allt í dag að leita að umhverfisvænu ungviði þau gætu nappað og hent í "Valbyanamo"  svona rétt til að sýna yfirmagt sína

En í svona fúlustu alvöru þá er reiknað með 100.000 manna friðsælli mótmælagöngu (ég vil frekar kalla það áköllunargöngu) frá Kristjánsborg og út til BellaCenter á morgun.  Puffinn var ekki alveg tryggur með sig enda í miðri gönguleið og bað mig því um að fá helgardvöl tveim strætum nær ströndinni sem hann svo fékk er við komum heim frá vinnu um hádegið í dag.

Og vonandi eigum við öll góða og friðsamlega stund á morgun sem og aðra daga við tvífætlingarnir hérna við og á COP15  


mbl.is Hundruð mótmælenda á leiðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og svo vilja þau fá STÓRA hjálp

þ.e.a.s. peninga frá iðnríkjunum þessi blesssuðu þróunarlönd (þar eru jú Kína/Indland/S-Afríka með í bát) til að skera niður í eigin bakgarði! Þannig að hver sé meiri "þráaþrjótur" getur verið stór spurning í þessum umræðum hér þessa dagana
mbl.is Drög Dana gagnrýnd harkalega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki of seint að snúa við þessarri "óþróun" sem orðið hefur á jarðkúlunni okkar !

En 97% fræðimanna (þar af margir mínir vinnufélagar), gefa okkur mannfólkinu sökina á hvernig allt er að fara á verri veg í loftslagsmálum.  Því er nauðsynlegt að sem flestar þjóðir og þá að sjálfsögðu þeirra leiðtogar sameinist um að snúa þessu á betri veg og einn liður í þeirri þróun er jú að ná góðum árangri á umræðum hér í Kaupmannahöfn núna. 

Ég hef fengið mest af gleðiskotum hingað til hér í undirbúningi COP15 yfir því að sjá hversu hratt bílaframleiðendurnir vinna í sínum málum svo vonandi verður minn næsti "puffi" CO2 neutral! Annars voru götur auðkeyrðar hér í Kaupmannahöfn í dag og sjálfsagt hafa flestir haldið að hér yrði umferðaröngþveiti strax á fyrsta degi og því tekið hjólið/metró í morgun :-)


mbl.is Loftlagsráðstefnan sett
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og Hopenhagen LIVE að verða klár uppá Ráðhústorgi

En þar verður framtíðarborgin HOPENHAGEN Live starfrækt frá 7-18 desember. 

Undanfarna viku er búið að vera mikil uppbygging á torginu svo mikil að dúfugreyin 1427 sem búa þar hafa orðið að hafast við út á torgbrún og verið í ofurhættu vegna hjóla og bíla. 

Gígantískur hnöttur Globen er komin upp niðrí í downtown Hopenhagen og á kvöldin er kveikt á honum og þá breytist hann í jörðina og á hana verða þeir settir sem tákn allir sem heimsækja hopenhagen bæði í eigin persónu sem og á vefnum og  þaðan verður líka borgarmyrkvuninni 16des milli 19:00-20:30 stjórnað. 

Í uptown Hopenhagen má neðal annars finna veitingastaðinn Green Cusine þar sem kaupa má loftslagsvænan takeway mat og fá góð ráð hvernig elda má á hollari umhverfisvænan máta. 

Í vísindahverfi Hopenhagen er hægt að kíkja á hvernig hægt er að gera smá græn afrek hvern dag til að spara CO2.

í City(miðbæ) Hopenhagen má finna framtíðar borgina og svo er hægt að setjast á eitt af 15 reiðhjólum sem notuð eru til að knýja rafala þá sem lýsa jólatréð okkar þetta árið :-) 

Á borgarsenunni (sem lánuð var af Hróarskelduhátiðinni -grønscene auðvitað) er svo nóg um að vera og mun popp/rokk grúppan Nephew opna showið þar 7des klukkan 18:30 og Malk de koijn með fleirum loka því 18 des klukkan 20:00. 

Svo má finna ýmsa aðra viðburði hér um alla borg þannið að seigja má að hér verði umhverfisvænt líf og fjör!

Hopenhagen_LIVE 

 

Wizard 

hér er linkur á heima síðu   HOPENHAGEN_LIVE


mbl.is Danir eiga von á a.m.k. 100 leiðtogum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 1021

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband