Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010

Eurovision update I 30-04-2010 hér er myndband með lagi Heru

Hér er myndband með lagi HERU 

njótið í botn Whistling


Kryddplönturnar komnar á svalirnar í ræktun!

Kryddjurtirnar 2010

en hér að ofan má sjá það sem á að rækta í sumar.  

Í innri kassanum er aðal lambakryddið mitt Dverga-Timian, Dverga-Óreganó og Rósmarín og í þeim ytri má sjá Dverga-Karrý, Romerska-Kamillu, og Hvítlauks-Graslauk 

Þetta er búið að vera núna í viku í kössunum á svalagólfinu og fer svo um helgina á ytri hlið svalanna þar sem þetta er allt farið að vaxa eftir viku í skjóli

set svo mynd af ávaxtatrjánum á "rebbanum" hér líka já og hengi-björkinni jú :-)

Ávaxtatrén á

namm namm Wizard


Skrípaleikurinn með "ríka" liðinu heldur áfram!

Hvernig í ósköpunum á að stoppa svona peningasukk hjá þessu liði?  Held að manni sjálfum findist bara fínt að geta fengið óverðtryggt 110% lán út á eigin fasteign sem er jú bara 90% veðsett eins og er og fjárfesta næstu tíu árin út á það lán.  Spurningin er þó er enn verið að sjúga peninga frá lífeyrissjóðunum eða eru nýju bankarnir kanski bara að vera góðir við stóru guttana svo þeir fái þá í viðskipti en ekki gekk þeim svo vel í fjárfestingum með þeim áður en þeir fóru á hausinn síðast.  Þannig að spurningin er jú hver lánar svona liði án samviskubrests?


mbl.is Jón Ásgeir fékk 440 milljónir króna að láni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eurovision update I 29-04-2010 - Puha það rétt náðist

Þetta hafðist þá degi fyrir kynningu NRK á framlagi Islands í Eurovision á Fornebu2010! En á laugardagskvöldið komandi koma norrænu lögin í kynningarþættinum þar og á þriðjudaginn 04-05 verður lag íslands metið hjá SVT svo ekki mátti þetta verða klárað mikið seinna. 

 


mbl.is Hera ástfangin af sundlaugarverði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjög góður veitingastaður þarna niður á Norðurbryggju

Og er hann vel kominn til hans þessi titill sem heimsins besta veitingahús.  Ég hef reyndar ekki borðað þar síðan árið sem það opnaði en það hefur unnið sig upp á við frá byrjun (og prísarnir líka) skilst mér.  En staðurinn fær mínar stærstu hamingjuóskir héðan sunnan frá.

Joyful

 

p.s lét mér nægja að kaupa skyrið á 15kall pr 500gr í Nettó í dag 


mbl.is Noma útnefnt besta veitingahús heims
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eurovision update I 26-04-2010

Þá duttu hér inn fjögur "prómóvideó" gerð vegna Eurovision á Fornebu nú í maí 2010

fyrst er það Eistneska lagið Siren með Malcolm Lincoln  

svo má sjá Serbann hann Milan Stanković með lagið Ovo je Balkan

þar á eftir kemur svo lag Letta sem nefnist What for? (Only Mr. God knows) flutt af Aisha

 

og að lokum önnur "promoversion" lagsins frá Spáni Algo pequeñito flutt af  Daniel Diges

njótið Whistling 

 

p.s. eitt af þessu lagi er jú fast inni á grjóninni hjá mér en segi ekki hvert af því það er! 

 


Eurovision update I 23-04-2010

GREECEGrikkir eru komnir með sitt annað "prómóvideó" vegna Eurovision2010 og hér má sjá það

OPA með Giorgos Alkeos & Friends

njótið Whistling


Eurovision update I 22-04-2010

BELGIUMÞá eru þau í Belgíu komin með sitt "prómóvideó" vegna Eurovision sem sjá má hér að neðan sem og í senuboxi

Me And My Guitar - Tom Dice

njótið Whistling


Og þjóðin "á ekki að láta ykkur líðast"

Þ.e.a.s þeim sem sátu á Alþingi á þessum spillingartíma á ekki að líðast að sitja áfram svo takið pokan ykkar og yfirgefið skipið.  Svona "krafsfundir" hylja ekki sporin og bæta ekki ásýnd ykkar gagnvart almúganum sem situr með sárindi. Blóðug slóð sem þið áttuð þátt í að skapa hún grær ekki nema þið hverfið ÖLL 


mbl.is „Létum þetta líðast“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Út með "bessastaðaflónið"

Með sínum stjórnunargangi er hann ÓRG eiginlega buin að gera þetta embætti ónýtt og ætti að sjá sóma sinn að forða sér út úr því! 

Og væri í því tilefni ekki tilvalið að fá annan af þessum aukaprinsum/prinsessum á Norðurlöndunum (DK N eða S) til að koma og taka að sér konungsjobb hér og það hlýtur að vera útrásarvíkingahöll" á lausu fyrir fólk og fé svo þetta kostar ekkert voða mikið í "startgebyr"  


mbl.is Baðst afsökunar á villu í skýrslunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband