Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Videobrot frá Allsång på Skansen III þann 07-07-09

Fyrst er það "ugla" 1 sem stígur hér fram - Caroline af Ugglas

svo kemur eitt með hinni "uglunni" Magnus Uggla

þar á eftir eitt með einum/tveim sem ég hef ekki heyrt um hér niður eftir fyrr

og svo kemur Magnus Uggla með sinn allsång hér

njótið Whistling

 


Svona frétt vekur upp minningar hjá einum "kríusjúkum" !!!

En fyrir "nokkrum" áratugum er egó bjó á Kópaskerinu litla, var hann einu sinni sem oftar úti við vitann að kíkja eftir kríueggjum, þetta var fyrir flugvallaræðið þar. Það að tína egg var eitt aðaláhugamálið hjá mér enda alinn upp við að egg skyldu nytjuð hvort sem það voru anda, gæsa, svartbaks, hettumávs eða kríuegg.  Skúmsegginn mátti maður svo ekki snerta því hans varpland var friðað og enda var hann líka helv harður að passa sitt varp sjálfur niðri í bakkalandi Austursands.

Einu sinni er einn brunaði heim á leið með upptöku sína varð hann fyrir einni "aggressívri" sem kom á fullri ferð á móti og skipti ekki sköpum að þau mættust bæði á góðri ferð.  Egó steyptist af hjólinu útí móa og eggin öll maukuðust.  

Blóðið fossaði niður ennið og er egó hafðist á heimenda varð fjölskyldunni brugðið en egó var nú ekki mikið að kippa sér upp við að hann væri eins og eftir heljarinnar tómatslag niðrá Spáni útlits en var foxillur við kríu skrattann sem hafði eyðilagt öll eggin fyrir honum.   

Vona að þessum tveim í gærkvöldi heilsist sem best

og þið hin eigið góða sólríka helgi  

p.s mitt hjól var nú reyndar bara með eitt stráksafl svo ferðin var jú ekki yfir leyfilegum mörkum á sandveginum


mbl.is Fékk kríur í fangið og ók út af
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kostinn við að mæta á ströndina snemma ......

má sjá hér á myndum að neðan.

Billede0032 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Billede0033

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En þegar ég mætti á Helgoland í morgun klukkan 07:30 var hægt að velja besta stæðið enda var ég númer þrjú á svæðið - svona kostur er að hafa lykil svæðið opnar fyrir almenningi kl 10Cool


Notaleg frétt þetta!

Og kemur lestur svona frétta, sem enda vel, manni alltaf í gott skap hvernig sem viðrar utan sem innan - eigið góða helgi!Cool
mbl.is Týndi bróðirinn bjó í næsta húsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Detox – tískuheilsukúr eða nútíma djöflahreinsun?

Allt það sem gerist og á að heita gott við detox meðferð er eitthvað sem þeir sem bjóða hana hafa fundið uppá sjálf að sé gott fyrir kropp og sál.  Engin læknisfræðileg rannsókn hefur sýnt að þetta sé góð meðferð fyrir okkar heilsu og það að starfsfólk "detox-hreinsistöðvanna" segir að öll eiturefni þau sem séu í mat þeim sem við borðum því hrein og klár sölubrögð svo það sé hægt að ná þeim úr kroppnum með detox-meðferð. 

Detox-fólkið gefur okkur rangar hugmyndir um hvað við eigum að borða.  Gefa ráð um að borða óhollan mat frekar en þann holla. Til dæmis það að við eigum ekki borða gróft korn og kartöflur og frekar sé hollara að hella olíu inn í stórum skömmtum t.d taka ca 6-10msk á dag í svokölluðum olíukúr.  Ekki drekka fituskerta mjólk og ráðleggja að nota smjör frekar en fituskert viðbit.  Öll fita sé holl svo lengi sem hún sé framleidd á vistvænan hátt (økologisk) líka dýrafita.  Þau ráð sem okkur eru gefin í mataræði eru svo erfið að óvíst er að hægt sé að fylgja þeim í langan tíma þetta einkum ef litið er á matarvenjur okkar og einnig er magn kolvetnis í kúrnum of lágt.    

Ein aðalröksemd "detoxarana" er líka röng:  Líkami okkar er ekkert fullur af eiturefnum sem þarf að hreinsa út með sérstöku mataræði, því allur venjulegur hollur matur hefur ekkert af hættulegum efnum í sér sem líkaminn ekki kemur frá sér með verkfærum þeim sem náttúran hefur gefið okkur t.d nýrum og lifur.  

Og maður getur heldur ekki farið í "detox" meðferð til að leggja af offita getur hreinlega ekki "detoxast" burt    

Með loforðum þeim sem okkur eru gefin á detox-meðferðar stofunum  er okkur beint frá þeirri hjálp sem eftil vill er grunnurinn að því að okkur líður ekki vel eins og almennri læknishjálp, sálfræðiaðstoð og lærðu fólki í mataræði og heilsufræði sem gæti gefið góð ráð um kostinn.     

Einnig koma hjá þeim þær skrýtnustu hugmyndir og loforð um að ef við "detoxum" okkur þ.e.a.s fjarlægjum t.d kolvetnið úr matnum verði maður ekki stressaður, sofi betur, losni við neikvæðar hugsanir, svima, hræðslu, þunglyndi, minnistap, höfuðverk, hrukkur, og grátt hár. Svona mætti lengi telja það sem sölumenn "tískuheilsukúrsins" sem ég nú frekar hallast að að hæfi betur nafnið "djöflahreinsun" lofa að fáist með meðferðinni.

Því finnst mér það leitt að sjá að verkalýðsfélag sé farið að niðurgreiða svona "djöflahreinsanir" því þær gefa ekkert af sér annað fyrir kúnnann en mikil fjárútlát, tímaeyðslu og orku tap.


mbl.is Niðurgreiðir Detox meðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hér eru myndbönd með norsku eurovision vinningslögunum (svona af því það er 17 Maí)!

1985 Bobbysocks með La det Swinge

 

Svo 1995 Secret Garden með Nocturne

 

Og lagið sem vann í gær/nótt 

2009 Alexander Rybak með Fairytale


mbl.is Tvöföld þjóðhátíð Norðmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumarið kemur á morgun kl 02:00!

eða allavega breytum við klukkunni í þá áttina í nótt og svo lítur "sørenmeg" út fyrir að fari vorandi - því hér er vonast eftir og spáð á DMI að hitinn fari að komast í "hálfanannanjákvæðantug"  um miðja viku svo nú fer þetta alt að koma - enda kominn tími til því apríl að bresta á og fyrsti vormánuður ekki verið sérlega vorlegur svona hvorki með tilliti til birtu né hita!Cool

p.s þó eru trén mín í garðinum farin að sýna þrútna blómknúppa þannig að eftir viku verður allt bleikt hvítt og gult hér úti eins og undanfarin ár (bara aðeins seinna í ár)!

HPIM1240  HPIM1582 HPIM1239


Teljari sem sýnir hvaðan gestirnir ykkar koma!

Einn slíkan teljara má finna á www.flagcounter.com og er einfalt að setja hann upp:

Farið inn á aðgerðina listar og í boxið Nafn lista: (þar má setja hvað sem er eða bara "emptyspace" í boksið)

í Lýsing: þar límir maður það sem afritað er af flagcounter.com (en á þeirri síðu er klikkað á get my flag counter og valið/afritað efra boxið þar (Code for websites)).  

Svo velur maður Tegund: HTML-box 

Að lokum er svo ýtt á hnappinn bæta við og ÚPS þá er kominn "landaheimsóknateljari" hjá ykkur


Geðveikislega mikil hjálp þeim sem eru enn að brjótast um inni í skápnum ógurlega!

Og er þetta jú bara enn ein sönnun fyrir OKKUR sem erum SAMKYNHNEIGÐ og finnst það hið besta mál að lífið okkar sé eins og annarra sama hve hátt við klifrum! 

Því má ekki taka þennan fréttaflutning erlendra miðla sem neikvæðni (eins og mest allt sem þið þessi hrjáða þjóð túlkið allt sem sagt er um ykkur þessa dagana) heldur með jákvæðni og hjálp fyrir fólk sem er að brjótast um inni í skápnum.

Fyrir suma er þetta mikið mál mest allt lífið og sumir geta alls ekki "feisað" það og stoppa lífið út af því, athugið það því það er ekki þeim að kenna nei ykkur fordómsfulla liðinu! Cool


mbl.is Jóhanna vekur heimsathygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 1102

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband